TikTok
Hvernig á að tilkynna um ólöglegt efni?

Lög ESB um stafræna þjónustu kveða á um að kerfi á borð við TikTok geri ráðstafanir til að hægt sé að senda tilkynningar um grun um ólöglegt efni.

Hvernig á að tilkynna um ólöglegt efni?

  • Til að tilkynna um grun vegna ólöglegs efnis í TikTok-forritinu:
    • 1. Opnaðu myndbandið/athugasemdina/LIVE eða annað efni sem þú vilt tilkynna.
    • 2. Annaðhvort geturðu haldið fingri á myndbandinu/athugasemdinni/LIVE eða ýtt á deilingartáknið eins og við á. Ýttu á „Deila“ eða punktana þrjá til að tilkynna annað efni.
    • 3. Veldu Tilkynna og því næst Tilkynna ólöglegt efni af listanum.
    • 4. Veldu réttan flokk ólöglegs efnis af listanum og fylgdu leiðbeiningunum sem gefnar eru upp.
  • Til að tilkynna um grun vegna ólöglegs efnis á TikTok-vefsvæðinu:
    • 1. Opnaðu myndbandið/athugasemdina/LIVE eða annað efni sem þú vilt tilkynna.
    • 2. Ýttu á punktana þrjá sem birtast efst á myndböndunum. Veldu svo Tilkynna.
    • 3. Veldu Tilkynna ólöglegt efni af listanum.
    • 4. Veldu réttan flokk ólöglegs efnis af listanum og fylgdu leiðbeiningunum sem gefnar eru upp.

Hér að neðan má finna frekari upplýsingar um flokka ólöglegs efnis.

Reglur um tilkynningar ólöglegs efnis

  • Til að auðvelda okkur að fara vel yfir tilkynninguna og meta hvort efnið sé ólöglegt verða eftirfarandi upplýsingar að koma fram í tilkynningunni:
    • Veldu land: Þú verður að velja land þar sem þú telur að efnið sé ólöglegt.
    • Viðkomandi lög: ÞÓTT ÞÚ ÞURFIR EKKI AÐ SKILA INN TILKYNNINGU, ÞÁ ÓSKUM VIÐ EFTIR, EF ÞÚ GETUR, að þú veitir upplýsingar um lögin sem þú telur að efnið brjóti gegn. Veittu eins nákvæmar upplýsingar og hægt er til að auðvelda okkur að meta tilkynninguna.
    • Ástæður: Við óskum eftir að þú útskýrir með skýrum hætti af hverju þú telur að efnið brjóti gegn lögum. Enn á ný biðjum við um eins nákvæmar upplýsingar og hægt er til að auðvelda okkur að meta tilkynninguna.

*Það kann að hafa alvarlegar afleiðingar að tilkynna efni sem ólöglegt. Þegar efni er tilkynnt sem ólöglegt verða upplýsingar að vera nákvæmar og sýna þarf fram á gögn sem styðja mál þitt til að við getum tekið upplýsta ákvörðun. Ef tilkynningin inniheldur ekki nægar upplýsingar til að TikTok geti metið hvort efnið sé ólöglegt verður tilkynningunni hafnað.

Hvað gerist eftir að tilkynning um ólöglegt efni er send?

  • Fyrst förum við yfir efnið sem var tilkynnt til að athuga hvort það brýtur í bága við reglur okkar (til dæmis reglur netsamfélagsins). Ef svo er kunnum við að fjarlægja efnið af TikTok á heimsvísu.
  • Ef efnið er ekki fjarlægt af TikTok á heimsvísu athugum við næst hvort tilkynningin innihaldi nægar upplýsingar til að við getum metið hvort tilkynnta efnið sé ólöglegt. Ef upplýsingar vantar í tilkynninguna (til dæmis ef hún veitir ekki nægar upplýsingar til að TikTok geti metið hvort efnið sé ólöglegt) gætum við hafnað tilkynningunni og látið tilkynnanda vita af þeirri ákvörðun.
  • Ef tilkynningin inniheldur nægar upplýsingar metum við hvort við teljum efnið vera ólöglegt. Ef við teljum efnið vera ólöglegt verður aðgangur að því takmarkaður almennt í landinu þar sem það er ólöglegt (eða í sumum tilfellum á EES-svæðinu eða þá að efnið verður alfarið fjarlægt úr kerfinu okkar). Frekari upplýsingar um flokka ólöglegs efnis sem notendur geta tilkynnt má finna í „Flokkar ólöglegs efnis“.
  • Einstaklingar sem tilkynna um grun varðandi ólöglegt efni fá tilkynningu um ákvörðun okkar, þar á meðal ef við teljum að efnið sé ekki ólöglegt. Tilkynnendur sem eru ósammála þeirri ákvörðun geta áfrýjað henni í gegnum áfrýjunarkerfið

Leiðbeiningar um tilkynningaflokka fyrir ólöglegt efni

Við teljum að skapandi og skemmtileg upplifun á TikTok hefjist með öryggistilfinningu, og þess vegna viðhöldum við og framfylgjum tilteknum reglum netsamfélagsins og tengdum reglum, þar á meðal reglum og viðmiðum um notkun á TikTok. Reglur þessar gilda að því er varðar alla og allt í kerfinu okkar og þær fara oft saman við og ganga stundum lengra en gildandi lög í heimalandi þínu. Þótt við framfylgjum þessum reglum einkum með sjálfvirkni og mannauði geta notendur samfélagsins okkar um allan heim einnig notað tilkynningareiginleikana til að tilkynna okkur ef þeir telja að eitthvert efni feli í sér brot á reglum okkar.

Kröfurnar sem settar eru fram í lögunum um stafræna þjónustu fela í sér að við bjóðum samfélaginu okkar á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) upp á viðbótarvalkost, „Tilkynna ólöglegt efni“, í tilkynningareiginleikanum til að notendur geti tilkynnt okkur ef þeir telja að eitthvert efni feli í sér brot á lögum. Frekari upplýsingar um hvernig þessi valkostur er notaður eru hér.

Efni sem er tilkynnt sem ólöglegt verður fyrst skoðað með tilliti til reglnanna okkar og fjarlægt alls staðar ef efnið telst brjóta gegn reglum TikTok. Ef svo er ekki fer teymi sérfræðinga og, ef nauðsyn krefur, lagalegra skoðunarmanna yfir tilkynninguna og grípur til aðgerða ef efnið er ólöglegt, þar með talið til dæmis með því að takmarka aðgang að efninu í landinu þar sem það brýtur gegn lögum.

Þegar efni er tilkynnt vegna gruns um að það sé ólöglegt verður beðið um að látið sé vita hvers konar ólöglegt efni verið er að tilkynna með því að velja flokk ólöglegs efnis. Þetta hjálpar okkur að taka tilkynninguna til athugunar á tilhlýðilegan og virkan hátt og bregðast við henni. Hér á eftir er tekið saman hvað hver þessara tilkynningaflokka fyrir ólöglegt efni felur í sér, merking þeirra í reynd og hvaða upplýsingar kæmu að gagni þegar efni er tilkynnt sem talið er að falli í viðkomandi flokk.

Það sem þú getur gert til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna

  • Veittu glöggar upplýsingar.
  • Veittu þær upplýsingar og samhengi sem þú getur sem styðja við tilkynninguna og hjálpa okkur að taka ákvörðun.
  • Tilgreindu setninguna, myndina, skilaboðin eða efnið sem þú telur að sé ólöglegt og skýrðu hvers vegna.
  • Allir geta tilkynnt ólöglegt efni. Það þarf ekki að tengjast þér eða einhverjum sem þú þekkir. Ef ólöglega efnið varðar þig eða einhvern sem þú ert í fyrirsvari fyrir, eða ef þú ert foreldri eða forráðamaður viðkomandi, er þó mjög gagnlegt að þú veitir okkur upplýsingar um það.

Við þurfum að fá nægar upplýsingar frá þér til að meta hvort efnið sé í reynd ólöglegt. Okkur er einnig lagalega skylt að halda jafnvægi milli lagalegs réttar sem stangast á þegar tilkynning um ólöglegt efni er tekin til greina (eins og tjáningarfrelsi).

Kynferðisleg misneyting á börnum

Kynferðislegt efni með ungmennum (yngri en 18 ára) eða barnaníðsefni (CSAM) er hvers kyns sjónrænt efni, texti og hljóð sem dregur upp mynd af eða felur í sér beint eða óbeint kynferðisofbeldi gagnvart börnum og misneytingu á börnum. Þetta gæti falið í sér:

  • Efni með myndum sem kyngera ungmenni
  • Tilraunir til að ráða ungmenni til að framleiða barnaníðsefni
  • Boð um að deila barnaníðsefni
  • Efni sem felur í sér nettælingu eða beiðni um kynlífsþjónustu frá ungmenni

TikTok líður alls ekki kynferðislega misneytingu á börnum.

Ef ólöglegt efni af þessu tagi verður á vegi þínum skaltu ekki sækja, vista, skrifa ummæli um, deila eða eiga í samskiptum við efnið. Tilkynntu það gegnum tilkynningaraðferðir okkar fyrir ólöglegt efni. Auk þess geturðu tilkynnt það samtökum eða stofnun sem þú treystir eða löggæsluaðilum á staðnum.

Hryðjuverk

Hryðjuverk fela í sér alvarleg afbrot á borð við að stefna lífi fólks í hættu, gíslatöku, eyðileggja viðkvæm svæði og raska grundvallarinnviðum. Einnig fela þau í sér víðtækt svið athafna sem styðja hryðjuverk. Þessar athafnir eru oft í þeim tilgangi að valda verulegum ótta, veikja eða skaða íbúa, yfirvöld eða innviði lands eða alþjóðastofnunar eða tilraun til að þvinga þau til að starfa á tiltekinn hátt.

Þetta gæti falið í sér:

  • Að greiða fyrir hryðjuverkum eða hvetja aðra til að gera það
  • Að aðstoða hryðjuverkahópa eða starfsemi þeirra
  • Efni sem tengist hryðjuverkahópi og felur í sér athafnir á borð við nýliðun, ferðalög, fjárstuðning, þjálfun og leiðbeiningar
  • Að sýna hryðjuverk í fegruðu ljósi, réttlæta þau eða afla stuðnings við þau

TikTok tekur ótvíræða afstöðu gegn hryðjuverkum og ofbeldishneigðri öfgahyggju.

Ólöglegur hatursáróður

Ólöglegur hatursáróður er:

  • Að hvetja til eða stuðla að ofbeldi eða hatri gegn einstaklingi eða hópi á grunni lögvarinna einkenna; eða
  • Að hafna, líta fram hjá eða gera mjög lítið úr þjóðarmorði, glæpum gegn mannkyninu eða stríðsglæpum sem beint er að hópi eða einstaklingi á grunni lögvarinna einkenna af ásetningi

Lögvarin einkenni geta verið kynþáttur, þjóðerni, uppruni, kynhneigð, kyn, kynvitund, fötlun.

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna þína skaltu þar sem hægt er tilgreina nákvæmlega setninguna eða myndina sem þú telur að feli í sér hatursáróður og útskýra hvers vegna.

Efni að því er varðar ofbeldisbrot eða skipulagða afbrotastarfsemi

Efni að því er varðar ofbeldisbrot eða skipulagða afbrotastarfsemi er ólöglegt efni sem sýnir gróft ofbeldi eða þátttöku í ólögmætum samtökum. Þetta gæti falið í sér:

  • Efni sem varðar myndun eða stofnun ólögmætra samtaka, eða veitir upplýsingar eða úrræði til að ólögmætu samtökin geti uppfyllt markmið sín
  • Efni sem felur í sér ólögmæt samtök sem afla nýrra meðlima eða efni sem veitir stuðning til að fjármagna ólögmætu samtökin
  • Efni sem felur í sér og annaðhvort fegrar eða gerir lítið úr grimmilegum eða ómannúðlegum ofbeldisaðgerðum gegn raunverulegum manneskjum eða mannlegum verum

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu, þar sem hægt er, tilgreina ólögmætu samtökin (eða meðlimi þeirra) sem fram koma í efninu.

Ólögleg persónuverndartengd brot

Ólögleg persónuverndartengd brot fela í sér að gefa upp persónuupplýsingar einhvers á ólöglegan hátt án leyfis viðkomandi, eða aðrar einkaupplýsingar með hætti sem brýtur gegn persónuverndarréttindum viðkomandi. Í sumum tilvikum getur þetta falið í sér tilboð eða hótun um að veita upplýsingarnar.

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu:

  • Tilgreina persónuupplýsingarnar eða einkaupplýsingarnar í efninu
  • Ef við á, tilgreina einstaklinginn sem upplýsingarnar tengjast og hvort viðkomandi er undir 18 ára aldri. (Til að mynda á þetta ekki við ef afbrotamaður hótar að greina frá aðgangsorðum hundraða einstaklinga)
  • Útskýra hvort einstaklingurinn eða fyrirtækið sem deilir upplýsingunum hefur fengið samþykki til að gera það.
  • Lýsa því hvernig efnið brýtur gegn persónuvernd einstaklingsins, þar með talið með því að útskýra hvers vegna þú segir að um einkaupplýsingar sé að ræða

Birting persónulegra eða viðkvæmra mynda án samþykkis

Birting persónulegra eða viðkvæmra mynda án samþykkis felur í sér að birta viðkvæmar myndir eða myndbönd ólöglega án samþykkis viðkomandi einstaklings. Þetta gæti falið í sér:

  • Efni þar sem áhersla er lögð á einkastað á líkamanum eða nærfatnað, eða sem sýnir kynferðislega eða persónulega athöfn
  • Efni með einstaklingi á lokuðum stað sem ekki er sýnilegur öðrum, til að mynda falin myndavél inni á salerni eða baðherbergi
  • Viðkvæmar myndir teknar á almannafæri þar sem einstaklingurinn veitti greinilega ekki samþykki, til að mynda upp undir pils

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu, ef mögulegt er:

  • Útskýra hvort einstaklingurinn sem um ræðir samþykkti að myndinni eða myndbandinu væri deilt

Samt sem áður geta allir tilkynnt viðkvæma mynd sem virðist hafa verið deilt án leyfis einhvers.

Ólöglegar vörur/þjónusta

Ólöglegar vörur/þjónusta fela í sér efni sem kynnir eða greiðir fyrir ólöglegri þjónustu, eða sölu eða flutning á ólöglegum vörum. Þetta gæti falið í sér:

  • Að auðvelda mansal, þar með talið að bjóða fólk til sölu
  • Að greiða fyrir eða hagnast á vændisstarfsemi annarra eða auglýsa kynlífsþjónustu gegn greiðslu
  • Að selja, dreifa, bjóða eða framleiða ólögleg lyf eða fíkniefni
  • Að eiga ólögleg viðskipti með villtar lífverur eða sannfæra aðra um að gera slíkt
  • Að eiga ólögleg viðskipti með skotvopn

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu tilgreina ólöglegu þjónustuna eða vörurnar.

Áreitni eða hótanir

Hótanir fela í sér tjáningu um þá fyrirætlan að fremja alvarlegt afbrot gegn einstaklingi eða hópi einstaklinga: einkum hótanir um alvarlegar líkamsmeiðingar eða kynferðislegt ofbeldi eða hótanir um að eyðileggja eða stela eigum þeirra.

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu, ef mögulegt er:

  • Tilgreina nákvæmlega setninguna eða myndina sem þú telur að sé ólögleg hótun
  • Tilgreina einstaklinginn eða samtökin sem þú staðhæfir að hafi í hótunum og einstaklinginn eða hópinn sem hótunin beinist að
  • Útskýra hvers vegna þetta telst vera ólögleg hótun

Áreitni er þrálát hegðun (það er að segja ekki einstakt tilvik) sem beinist að einstaklingi og veldur eða hefur þann ásetning að valda alvarlegri skelfingu eða þjáningu.

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu, ef mögulegt er:

  • Tilgreina nákvæmlega setninguna eða myndina sem þú telur að sé áreitni
  • Tilgreina einstaklinginn sem efnið beinist að
  • Skýra hvernig efnið veldur þeim einstaklingi alvarlegri skelfingu eða þjáningu
  • Upplýstu, annaðhvort almennt eða sértækt, hvernig sá sem áreitir hefur sýnt af sér þráláta hegðun, þ.e. sýndu fram á að ekki sé um einstakt tilvik að ræða. Ef sá sem áreitir hefur beint spjótum sínum að sama einstaklingi við önnur tilefni skaltu leggja fram upplýsingar um það.

Rógburður

Rógburður er röng fullyrðing eða staðhæfing um einstakling eða samtök sem skaðar orðspor þeirra alvarlega. Slík fullyrðing er sögð vera rógburður um einstaklinginn. Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu:

  • Tilgreina nákvæmlega fullyrðinguna eða staðhæfinguna sem þú telur vera ranga og rógburð
  • Tilgreina einstaklinginn eða samtökin sem þú staðhæfir að verði fyrir rógburði í fullyrðingunni
  • Staðfesta að þú sért einstaklingurinn eða fulltrúi einstaklingsins eða samtakanna sem tilgreind eru í fullyrðingunni eða staðhæfingunni
  • Skýra hvers vegna fullyrðingin eða staðhæfingin er röng og rógburður og hvers vegna hún skaðar orðspor einstaklingsins eða samtakanna alvarlega

Afbrot sem tengjast neytendum

Afbrot sem tengjast neytendum er efni sem:

  • brýtur lög til verndar neytendum í Evrópusambandinu/EES og aðildarríkjum þeirra; eða
  • greiðir fyrir sölu eða viðskiptum með óöruggar eða hættulegar vörur sem eru ólöglegar

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu:

  • Útskýra hvers vegna þú telur að efnið brjóti neytendalög
  • Tilgreina óöruggu eða hættulegu vöruna sem þú telur að sé ólögleg

Afbrot sem tengjast upplýsingum

Afbrot sem tengjast upplýsingum eru afbrot þar sem ólöglegt er að birta tilteknar upplýsingar eða að senda tiltekin skilaboð. Þetta gætu til dæmis verið:

  • Ólöglega villandi upplýsingar
  • Vanvirðing við réttinn og brot á réttarreglum
  • Brot gegn dómsúrskurðum
  • Ólögleg upplýsingagjöf
  • Leiðbeiningar/hvatning í tengslum við sjálfsvíg

Ólöglega villandi upplýsingar

Þetta felur í sér að dreifa villandi upplýsingum á ólöglegan hátt sem brýtur gegn lögum Evrópusambandsins/EES og aðildarríkja þeirra.

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu:

  • Tilgreina nákvæmlega setninguna, myndina, skilaboðin eða efnið sem þú telur að séu ólöglega villandi upplýsingar
  • Útskýra hvers vegna þú telur að efnið kunni að brjóta lög

Vanvirðing við réttinn og brot á réttarreglum

Ströng lög takmarka deilingu tiltekinna upplýsinga um málarekstur fyrir dómstóli. Tilgangur þessara laga er að koma í veg fyrir að upplýsingum sé deilt sem kunna að hafa ósanngjörn áhrif á dómsmál, vernda einkalíf tiltekinna einstaklinga sem eru aðilar að dómsmálum og vernda heilleika réttarkerfisins. Í sumum lögsagnarumdæmum er „vanvirðing við réttinn“ heiti á tilteknum brotum á réttarreglum eða dómsúrskurðum sem valda hættu á ósanngjörnum áhrifum á dómsmál.

Efni sem gæti brotið gegn réttarreglum í sumum löndum er meðal annars:

  • Upplýsingar sem auðkenna einstaklinga yngri en 18 ára sem eru aðilar að dómsmálum eða endurhæfingu afbrotamanna
  • Upplýsingar sem auðkenna fórnarlömb kynferðisglæpa, limlestinga á kynfærum kvenna, nútímaþrælahalds eða mansals
  • Samskipti við vitni eða kviðdómara í dómsmáli til að reyna að hafa áhrif á viðkomandi í tengslum við málið
  • Birting upplýsinga um umfjöllun kviðdóms

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu:

  • Tilgreina nákvæmlega setninguna, myndina, skilaboðin eða efnið sem þú telur að brjóti gegn réttarreglu eða sé vanvirðing við réttinn
  • Útskýra hvers vegna þú telur að efnið brjóti gegn réttarreglu eða sé vanvirðing við réttinn

Brot gegn dómsúrskurðum

Dómstólar setja oft fram tiltekna úrskurði sem gera öðrum ólöglegt að framkvæma tilteknar aðgerðir eða láta í té ákveðnar upplýsingar. Dómsúrskurðir gætu takmarkað:

  • Efni sem birtir opinberlega tiltekna þætti dómsmála
  • Efni sem birtir opinberlega tilteknar upplýsingar um einkalíf einstaklings
  • Efni sem birtir opinberlega auðkenni tilgreindra einstaklinga (til að mynda vitna í mikilli hættu)
  • Að einstaklingar hafi samband við tiltekna aðra einstaklinga (til að mynda í kjölfar dómsmáls um heimilisofbeldi)

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu:

  • Tilgreina nákvæmlega setninguna, myndina, skilaboðin eða efnið sem þú telur að brjóti gegn dómsúrskurði
  • Gefa upplýsingar um dómsúrskurðinn

Ólögleg upplýsingagjöf

Þetta felur í sér ólöglega upplýsingagjöf sem brýtur gegn lögum Evrópusambandsins/EES og aðildarríkja þeirra.

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu:

  • Tilgreina nákvæmlega setninguna, myndina, skilaboðin eða efnið sem þú telur vera ólöglega upplýsingagjöf
  • Útskýra hvers vegna þú telur að efnið brjóti lög

Leiðbeiningar/hvatning til sjálfsvígs

Þetta felur í sér ólöglegt efni sem aðstoðar við, útfærir, hvetur til eða ráðleggur annarri manneskju að reyna athafnir sem leiða til sjálfsvígs. Þetta gæti falið í sér:

  • Efni sem stuðlar að sjálfsvígi
  • Leiðbeiningar um athafnir sem gætu leitt til sjálfsvígs.

Öryggi og velferð TikTok-samfélagsins hefur algeran forgang. Ef þú eða einhver sem þú þekkir á erfitt tilfinningalega er hjálp í boði – sjá betur í kaflanum Úrræði hér.

Fjármálaglæpir

Fjármálaglæpir eru glæpir sem tengjast fé eða eignum. Þetta gæti falið í sér:

  • Svik – þar sem einhver kemur óheiðarlega fram með það fyrir augum að misnota aðra til að komast yfir fé eða eignir
  • Peningaþvætti – ferli þar sem ávinningi af afbrotum (til að mynda peningum eða eignum sem komist er yfir með glæpastarfsemi) er breytt í peninga eða eignir sem virðast eiga sér lögmætan uppruna. Þetta felur í sér að fela, dulbúa, umbreyta, yfirfæra, afla, nota eða eiga ávinning af afbrotum
  • Kúgun – þar sem einhver leggur fram kröfu eða beiðni ásamt alvarlegri hótun með það fyrir augum að misnota aðra til að komast yfir fé eða eignir
  • Mútur – tilboð, beiðni, loforð eða samþykkt um að veita einstaklingi ávinning í skiptum fyrir að framkvæma athöfn á ótilhlýðilegan hátt. Ávinningurinn gæti verið fé eða annars konar fríðindi

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu:

  • Tilgreina tegund fjármálaglæps sem þú telur að verið sé að fremja
  • Ef þú hefur viðbótarupplýsingar sem styðja við tilkynninguna skaltu skrá þær upplýsingar

Brot sem varða þjóðaröryggi

Brot sem varða þjóðaröryggi eru afbrot sem ógna þjóðaröryggi lands. Þetta gæti falið í sér:

  • Að hvetja til afstöðu um að steypa ríkisstjórn af stóli með valdi
  • Að ljóstra upp um viðkvæmar upplýsingar ríkisstjórnar, trúnaðargögn, ríkis- eða viðskiptaleyndarmál
  • Athafnir sem skaða eða fela í sér árás á eignir eða viðkvæma staði
  • Athafnir sem valda alvarlegri hættu fyrir líf eða almannaöryggi

Annað ólöglegt efni

Ef þú rekst á efni sem þú telur að sé ólöglegt en sem virðist ekki falla í neinn framangreindra tilkynningaflokka geturðu valið að tilkynna það sem „annað ólöglegt efni“.

Til að hjálpa okkur að meta tilkynninguna skaltu:

  • Tilgreina nákvæmlega setninguna, myndina eða efnið sem þú telur vera ólöglegt
  • Útskýra hvers vegna þú telur að efnið sé ólöglegt