Síðast uppfært: Júní 2022
Þessar reglur um umbun gilda fyrir notendur á Evrópska efnahagssvæðinu, í Sviss og Bretlandi.
Þú verður að hafa náð a.m.k. 18 ára aldri til að fá umbun í kerfinu.
Þessar reglur um umbun („reglur um umbun“) eiga við um notendur kerfisins sem taka þátt í hvatakerfum í boði TikTok sem er ætlað að hvetja notendur til að nota kerfið og skapa aðlaðandi efni í miklum gæðum í kerfinu („hvatakerfi“).
Notendur sem taka þátt í hvatakerfunum fá umbun frá TikTok („umbun“). Umbun sem TikTok býður (eins og demantar, afsláttarmiðar eða varningur) fer eftir hverju hvatakerfi fyrir sig. Þegar umbun er demantar er hægt að skipta slíkum demöntum fyrir peninga (sjá hluta 5 hér að neðan „Hvað er hægt að gera við demanta?“). Ekki er hægt að skipta annars konar umbun (eins og varningi) út fyrir peninga frá TikTok, nema annað sé tilgreint í skilmálum hvatakerfisins.
Aðilarnir sem bjóða í sameiningu upp á hvatakerfin eru TikTok Information Technologies UK Limited (fyrirtæki skráð á Englandi) og TikTok Technology Limited (fyrirtæki skráð á Írlandi). Hins vegar ber TikTok Information Technologies UK Limited alla ábyrgð á greiðslum, fjárhagslegum og skattalegum skuldbindingum af öllum toga sem tengjast hvatakerfunum.
Þátttaka þín í hvatakerfi fellur undir þessar reglur um umbun og skilmála sem þú færð í hendur fyrir hvert hvatakerfi fyrir sig (sem kallast, ásamt þessum reglum um umbun, „skilmálar hvatakerfis“). Einnig gilda þjónustuskilmálarnir um þátttöku í hvatakerfum líkt og um aðrar aðgerðir í kerfinu og frekari upplýsingar um úrvinnslu persónuupplýsinga er að finna í persónuverndarstefnunni.
Hugtök sem byrja á hástöfum og eru ekki skilgreind frekar í þessum reglum um umbun hafa merkinguna sem tilgreind er í þjónustuskilmálunum.
1. Hver er gjaldgeng(ur) til að taka þátt í hvatakerfi?
Þú verður að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að taka þátt í hvatakerfi og fá umbun:
- Vera staðsett(ur) í landinu eða á landsvæðinu sem skilmálar viðeigandi hvatakerfis gilda um.
- Uppfylla öll önnur viðbótarskilyrði hvatakerfisins eins og kemur fram í skilmálum viðeigandi hvatakerfis.
- Hafa náð a.m.k. 18 ára aldri.
- Eiga reikning í kerfinu.
- Uppfylla allar viðeigandi skuldbindingar og ekki hafa brotið gegn né liggja undir grun um að hafa brotið gegn skilmálum hvatakerfisins, þjónustuskilmálunum, reglum netsamfélagsins eða öðrum viðeigandi reglum.
2. Hvernig er hægt að taka þátt í hvatakerfi?
Skilmálar hvers hvatakerfis fyrir sig innihalda upplýsingar og leiðbeiningar um hvernig á að taka þátt.
3. Riftun og afturköllun
Riftun og afturköllun þátttöku í hvatakerfi
Við rannsökum öll ætluð brot á skilmálum hvatakerfisins, þjónustuskilmálunum eða reglum netsamfélagins. Við kunnum að loka fyrir aðgang þinn að tilteknum eiginleikum hvatakerfisins og að umbun á meðan rannsókninni stendur, allt eftir alvarleika ætlaðra brota.
Við kunnum að loka tímabundið eða varanlega fyrir aðgang þinn að hvatakerfi eða umbun sem þú hefur safnað af eftirfarandi ástæðum:
- við ákveðum á rökréttan hátt að þú hefur efnislega eða endurtekið brotið gegn skilmálum hvatakerfisins, þjónustuskilmálunum eða reglum netsamfélagsins,
- við höfum rökstuddan grun um og lögmætar ástæður til að ætla að þú hyggist brjóta gegn skilmálum hvatakerfisins, þjónustuskilmálunum eða reglum netsamfélagins,
- við höfum rökstuddan grun um og lögmætar ástæður til að ætla að þú hafir átt við, eða hafir gert tilraun til að eiga við vinnslu eða notkun hvatakerfis eða
- okkur ber skylda til að gera slíkt vegna málarekstrar eða beiðni.
Þegar lokað er fyrir þátttöku þína í hvatakerfi af fyrrgreindum ástæðum kunnum við af lögmætum ástæðum að minnka af öllu leyti eða að hluta til stöðu umbunar þinnar eða að öðru leyti ekki veita umbun af neinum toga. Þegar slíkt er viðeigandi og heimilt samkvæmt lögum munum við senda þér tilkynningu ef við lokum fyrir eða fjarlægjum aðgang þinn að hvatakerfi. Þú getur áfrýjað ákvörðun okkar ef þú telur okkur hafa gert mistök við að loka fyrir eða fjarlægja aðgang þinn að hvatakerfi með því að fylgja leiðbeiningum um áfrýjun í tilkynningunni um brot á reglum netsamfélagins (þar sem slíkt á við) eða með því að smella hér.
Hvatakerfi hætt alfarið eða tímabundið
Við munum veita þér hæfilegan fyrirvara ef við hættum alveg eða tímabundið með hvatakerfi, m.a. af eftirfarandi sökum:
- vegna breytinga sem eiga sér orsakir utan áhrifasviðs okkar,
- vegna tæknilegra vandamála varðandi hvatakerfi sem ekki er hægt að leysa innan skynsamlegra tímamarka, eða
- vegna breytinga á gildandi lögum, dómsúrskurðar eða ákvörðunar eftirlitsyfirvalda um að banna hvatakerfið að öllu leyti eða að hluta til.
Þegar við hættum alfarið eða tímabundið með hvatakerfi af áðurnefndum sökum hefur þú heimild til að nota uppsafnaða demanta eða aðra umbun sem þú átt rétt á samkvæmt skilmálum hvatakerfisins, nema slíkt sé bannað af dómstólum eða eftirlitsyfirvöldum.
Þegar þú hættir þátttöku í hvatakerfi
Þú getur hætt þátttöku í hvatakerfi hvenær sem er. Áður en þú gerir slíkt færðu tækifæri til að nota uppsafnaða demanta eða aðra umbun sem þú átt rétt á samkvæmt skilmálum hvatakerfisins.
4. Hvernig færðu umbun?
Umbun er veitt í eftirfarandi tilgangi:
- veita viðurkenningu fyrir vinsældir og gæði efnis í kerfinu,
- sýna notendum þakklætisvott fyrir framlag þeirra í kerfinu og
- þakka notendum fyrir virka þátttöku í kerfinu.
Mismunandi hvatakerfi veita ólíka umbun. Frekari upplýsingar um uppsöfnun á umbun er að finna í skilmálum hvers hvatakerfis fyrir sig. Ekki er hægt að stunda skipti á eða skipta út umbun nema með leyfi frá okkur og þú berð alla ábyrgð á notkun umbunar.
Við veitum hugsanlega ekki umbun eða fjarlægjum slíka umbun af reikningnum þínum ef við höfum rökstuddan grun um eftirfarandi:
- þú hafir brotið gegn skilmálum hvatakerfisins, þjónustuskilmálunum eða reglum netsamfélagins eða
- þú komst yfir umbunina á óheiðarlegan hátt.
Við gerum okkar besta við að veita þér réttan fjölda og/eða gerðir umbunar. Við munum hafa samband við þig og leiðrétta mistök ef af einhverjum sökum mistök verða við að veita umbun.
Söfnun demanta
Hægt er að safna demöntum sem umbun og nota demantana samkvæmt skilmálum hvatakerfisins. Þú getur safnað demöntum með því að nota tiltekna grundvallareiginleika kerfisins eins og gjafir Í BEINNI og myndskeiðsgjafir eða með þátttöku í tímabundnum herferðum (t.d. til að kynna nýja kerfiseiginleika eða halda viðburð). Þegar demantar eru í boði í hvatakerfi kemur slíkt fram í skilmálum viðkomandi hvatakerfis.
Við veitum demanta sem umbun til notenda miðað við hversu vinsælt efni þeirra er. Þar af leiðandi tökum við einnig mið af gjöfum sem notendur senda til að sýna efni annarra notenda viðurkenningu þegar við veitum demanta, þar sem gjafir eru aðalaðferðin við að meta vinsældir efnis í kerfinu. Við kunnum einnig að veita notendum demanta miðað við framlag þeirra í kerfinu, sem kann t.d. að fela í sér tímalengd eða tíðni efnis þeirra (slíkt er tilgreint frekar í skilmálum hvers hvatakerfis fyrir sig). Slíkt þýðir ekki í öllum tilvikum að notandi geti fengið peninga fyrir demantana sem viðkomandi hefur safnað, þar sem lágmarksgreiðslur um umbun gilda (sjá hluta 5 og 6 hér á eftir). Slíkt þýðir að notendur verða að safna lágmarksfjölda demanta áður en notendur geta fengið greidda umbun samkvæmt hluta 6 hér á eftir. Smelltu hér til að skoða dæmi um hvernig TikTok úthlutar notendum demöntum.
Við kunnum að draga demanta af reikningnum þínum ef við höfum rökstuddan grun um að gjafir hafi verið sendar sem brjóti gegn reglum um mynt, þjónustuskilmálunum eða reglum netsamfélagsins. Við munum senda þér tilkynningu með sanngjörnum fyrirvara ef við drögum demanta af reikningnum þínum af áðurnefndum sökum.
5. Hvað er hægt að gera við demanta?
- Þegar þú tekur þátt í hvatakerfi um að safna demöntum getur þú fengið greidda fjárhæð frá TikTok fyrir slíka demanta inn á ytri reikning með því að fara í gegnum greiðsluferli demanta sem lýst er hér á eftir (í hverju tilviki fyrir sig er um „greidda umbun“ að ræða). Þú verður að eiga skráðan reikning hjá greiðsluþjónustuveitanda og tengja umræddan reikning við reikninginn þinn í kerfinu til að fá greidda umbun.
- Ekki er hægt að skipta demöntum út fyrir mynt, gjafir eða aðrar sýndarvörur án heimildar frá okkur.
- Demantar teljast ekki vera eign. Við veitum þér heimild (sem kallast leyfi) til að safna demöntum. Slíkt þýðir að þú hefur engin réttindi eða tilkall til demanta nema annað sé sérstaklega tekið fram í þessum reglum um umbun.
- Þú mátt ekki selja, úthluta eða flytja demanta á annan hátt án heimildar frá okkur. Brot á þessum takmörkunum geta leitt til lokunar á aðgangi þínum að hvatakerfinu og/eða frádrætti umbunar.
- Þú færð að sjá verðgildið sem TikTok gefur demöntum áður en þú ferð í gegnum greiðsluferli demanta. Núverandi umreikningsgengi demanta og peninga birtist á síðum hvatakerfisins (sem er hægt að opna á valmyndinni verkfæri höfunda). Við kunnum að breyta áðurnefndu gengi með hæfilegum fyrirvara.
- Við kunnum, með hæfilegum fyrirvara, að koma í veg fyrir notkun demanta til að fá greidda umbun af lögmætum ástæðum (eins og vegna breytinga sem eru utan okkar áhrifasviðs, breytinga á viðskiptalíkani eða breyttrar stefnumótunar, breytinga á gildandi lögum, dómsúrskurðar eða vegna ákvörðunar eftirlitsyfirvalda).
- Færslugjöld kunna að vera innheimt þegar við greiðum þér umbun. Frekari upplýsingar um færslugjöld er að finna hér og öll færslugjöld birtast þér áður en þú lýkur við greiðsluferli demanta.
6. Hvernig fer greiðsluferli demanta fram?
- Þú verður að nota einn af greiðslumátunum sem við styðjum á þínu svæði (t.d. PayPal) til að fá greidda umbun fyrir demanta. Greidd umbun verður lögð inn á ytri reikning að eigin vali samkvæmt reglum greiðsluþjónustuveitunnar. Við áskiljum okkur rétt til að krefjast þess að þú skráir reikninginn í eigin nafni.
- Þú verður að ganga úr skugga um að upplýsingarnar sem þú lætur í té séu nákvæmar, tæmandi og uppfærðar. Þú berð ábyrgð á öllum afleiðingum (t.d. fjármunum sem kunna að týnast, vera stolið, vera lagðir of seint inn eða öðru tjóni) sem skyldu verða ef þú veitir ónákvæmar eða ófullnægjandi upplýsingar.
- Við kunnum að staðfesta greiðsluupplýsingar og gjaldgengi þitt til að safna demöntum eða fá greidda umbun eins og t.d. auðkenni, aldur og staðsetningu. Þú samþykkir að veita okkur viðbótarupplýsingar eftir þörfum, sé þörf á slíkum upplýsingum.
- Daglegt lágmark og hámark fyrir greidda umbun kunna að eiga við. Upplýsingar um slíkt hámark eða lágmark greiðslna fyrir umbun er að finna hér og slík mörk birtast þér þegar þú hyggst fá greidda umbun.
- Við kunnum af öryggisástæðum og/eða til að viðhalda heilleika reikningsins þíns, loka fyrir valmöguleika þína til að nota demanta í skiptum fyrir greidda umbun. Við höfum samband við þig ef við gerum slíkt. Í tilvikum þegar við verðum að gera áríðandi breytingar samkvæmt öryggiskröfum, lagalegum kröfum eða kröfum reglugerða, getum við hugsanlega ekki sent þér tilkynningu fyrirfram, en við munum láta þig vita eins fljótt og auðið er. Hafðu samband við okkur hér ef þú telur að við höfum gert mistök með því að loka fyrir valkost þinn um að nota demanta í skiptum fyrir greidda umbun.
- Við berum enga ábyrgð á tapi eða tjóni sem greiðsluþjónustuveitendur kunna að valda, að því gefnu að slíkt sé ekki afleiðing okkar gjörða.
- Öll greidd umbun inniheldur skatt (þegar slíkt á við). Þú berð ábyrgð á að greiða slíka skatta ef þér ber skylda til að greiða skatta af umbun.
- Ekkert gjald er tekið fyrir þátttöku í hvatakerfinu, en við kunnum að innheimta gjöld fyrir útlagðan kostnað okkar við úrvinnslu greiðslu fyrir umbun af hvaða umbunargreiðslu sem er.
7. Breytingar á hvatakerfi
Við kunnum að breyta eða takmarka hvatakerfi hvenær sem er af lagalegum ástæðum, vegna breytinga á reglugerðum eða af viðskiptaástæðum. Slíkar breytingar kunna að fela í sér hvaða aðilar fá að taka þátt í hvatakerfi, hvernig umbun er safnað saman eða notuð (t.d. kunnum við að loka fyrir möguleikann til að nota demanta til að fá greidda umbun). Ef við gerum slíkt munum við senda þér tilkynningu með hæfilegum fyrirvara áður en slíkar breytingar öðlast gildi. Þú getur notað hvatakerfið áfram samkvæmt þáverandi skilmálum innan áðurnefnds fyrirvara. Þú getur hætt þátttöku í hvatakerfinu áður en breytingarnar öðlast gildi, ef þú samþykkir ekki áætlaðar breytingar.
8. Hafa samband
Hafðu samband við okkur hér ef spurningar vakna.
Viðbótartungumál (einnig eru upplýsingar um önnur tiltæk tungumál að finna í tungumálastillingum)
- Búlgarska: български
- Króatíska: Cruatu
- Danska: Dansk
- Eistneska: Eesti keel
- Lettneska: Latviski
- Litáíska: Lietuvių
- Norska: Norsk
- Slóvakíska: Slovenský