TikTok
Áfrýjun og aðrir möguleikar endurupptöku

Fyrir aðila innan Evrópusambandsins („ESB“) og Evrópska efnahagssvæðisins („EES“) má hér fyrir neðan finna nokkra af þeim valkostum sem gætu verið í boði ef þú ert ekki ánægð(ur) með einhverja ákvörðun sem TikTok hefur tekið um hvort efni sé ólöglegt eða ósamrýmanlegt skilmálum okkar, þar á meðal varðandi allar tilkynningar frá þér.

Áfrýjanir

Lög ESB um stafræna þjónustu vísa til innri kvörtunarkerfa – við köllum þetta „áfrýjanir“. Þú getur áfrýjað ákvörðunum þar sem TikTok hefur:

Áfrýjanir standa einnig þeim til boða sem tilkynna efni til TikTok ef þeir eru ekki sáttir við ákvörðun TikTok (til dæmis ef TikTok ákveður að grípa ekki til aðgerða vegna tilkynningar frá þér).  

Áfrýjunarreglur:

Hér að neðan má finna reglur um hvernig TikTok meðhöndlar áfrýjanir:

  • Tímasetning: Þú getur áfrýjað allt að 180 dögum eftir að við tilkynntum þér um ákvörðunina sem þú vilt áfrýja. Áfrýjanir eru ekki í boði eftir það. Við biðjum þig um að áfrýja eins fljótt og mögulegt er eftir að við höfum tilkynnt þér um ákvörðunina svo við getum tekið áfrýjunina til meðhöndlunar eins fljótt og auðið er.  Þrátt fyrir að áfrýjun sé almennt í boði í 180 daga útskýrum við í kaflanum hér að neðan þær aðstæður þar sem áfrýjanir eru ekki í boði á þessu tímabili og ástæðurnar fyrir því.
  • Ein áfrýjun: Þú hefur rétt til að áfrýja hverri ákvörðun til TikTok aðeins einu sinni (þó að þú hafir önnur réttindi utan TikTok, eins og skýrt er í köflunum hér að neðan).
  • Viðeigandi upplýsingar: Ef þú ert ósammála ákvörðun okkar og vilt áfrýja biðjum við þig um að láta allar viðeigandi upplýsingar fylgja með til að hjálpa okkur að skilja ástæðurnar og til að meta áfrýjunina sem best. Ekki láta fylgja með upplýsingar sem eiga ekki beint við um áfrýjunina.
  • Móðgandi eða óviðeigandi orðalag: Sýndu virðingu þegar þú sendir inn áfrýjunina.Ef áfrýjun inniheldur móðgandi eða óviðeigandi málfar getum við hafnað henni.  
  • Breyttar ástæður: Ef þú tilkynnir efni af einni ástæðu og vilt síðar breyta ástæðu fyrir tilkynningunni er ekki víst að við lítum á það sem áfrýjun. Í stað þess að áfrýja gefst þér tækifæri til að leggja fram nýja tilkynningu (þar sem þú tilgreinir rétta ástæðu fyrir tilkynningunni).
  • Tilkynningar: Í ljósi hugsanlegra afleiðinga vegna ásakana um ólögmætt athæfi er gerð sú krafa að slíkar tilkynningar séu nægilega nákvæmar og studdar fullnægjandi sönnunargögnum til að sýna fram á meint ólögmætt athæfi án þess að TikTok þurfi að gangast undir ítarlega lögfræðilega rannsókn. Þessari kröfu er ætlað að tryggja að TikTok geti metið tilkynninguna á viðeigandi hátt og komist að upplýstri og vel ígrundaðri ákvörðun sem samrýmist réttindum á borð við tjáningarfrelsi og upplýsingafrelsi.  Ef tilkynning inniheldur ekki nægar upplýsingar til að gera TikTok kleift að ákvarða að efnið sem kvartað er yfir sé ólöglegt verður að hafna tilkynningunni.
  • Tilkynningar um ólöglegt efni: Ef þú tilkynnir grun um ólöglegt efni munum við láta þig vita ef við getum ekki metið lögmæti tilkynnts efnis annaðhvort vegna þess að: tilkynningin innihélt ekki nægilega skýrar og tilgreindar ástæður; eða að tilkynningin innihélt ekki nægilega skýra tilvísun í viðeigandi lög eða skýringu á því hvers vegna tilkynnt efni er ólöglegt.
  • Tilteknar aðstæður þar sem áfrýjun er ekki í boði: Áfrýjun verður ekki í boði í tilteknum tilfellum þegar ekki er lengur hægt að afturkalla viðkomandi ákvörðun. Þetta felur í sér þegar viðeigandi ákvörðun er þegar útrunnin. Ef um tímabundið bann er að ræða er til dæmis ekki lengur hægt að áfrýja eftir að tímabundna bannið er þegar útrunnið; eða ef ekki er lengur hægt að afturkalla viðkomandi ákvörðun vegna þess að efnið sem um ræðir er tímabundið og þegar útrunnið. Þetta gildir til dæmis um sögu sem er horfin eftir sólarhring eða streymi í beinni sem er þegar lokið, en í þeim tilfellum verður áfrýjun ekki lengur í boði vegna þess að efnið er útrunnið og ekki er lengur hægt að setja það inn aftur.
  • Hugverkaréttur: Sérstakar reglur um tilkynningar og áfrýjanir vegna brota á hugverkarétti má finna í hugverkastefnu okkar. Ef þú vilt áfrýja í tengslum við brot á hugverkarétti skaltu skoða hugverkastefnuna.
  • Niðurfelling á áfrýjunarrétti: Fyrir einstaklinga sem misnota áfrýjunarferlið með því að leggja fram fleiri en eina áfrýjun sem eru augljóslega tilefnislausar getur TikTok, í samræmi við DSA, lokað á möguleika slíkra einstaklinga til að leggja fram frekari áfrýjanir í hæfilegan tíma.

Hvernig á að áfrýja ákvörðun?

Ef þú ert ósammála ákvörðun okkar geturðu áfrýjað á eftirfarandi hátt:

  • 1. Til að áfrýja ákvörðun sem hefur áhrif á efni þitt eða reikning:
    • i. Tilkynning: Við munum senda tilkynningu með upplýsingum um ákvörðunina í TikTok-innhólfið þitt (eða með tölvupósti). Hér er dæmi um tilkynningu í forriti þar sem myndband hefur verið fjarlægt vegna brota á viðmiðunarreglum fyrir samfélagið.
    • ii. Áfrýjunarmöguleikar: Tilkynningarformið mun einnig innihalda áfrýjunarmöguleika. Við biðjum þig um að útskýra áfrýjunina í frjálsum textareit.


  • 2. Til að áfrýja ákvörðun í tengslum við tilkynningu frá þér:
    • i. Tilkynning: Í kjölfar tilkynningar munum við senda tilkynningu með upplýsingum um ákvörðunina í TikTok-innhólfið þitt (eða með tölvupósti). Hér er dæmi um tilkynningu í forritinu sem var send til aðila sem tilkynnti mál þar sem TikTok fann engin brot í tengslum við tilkynnt efni.
    • ii. Áfrýjunarmöguleikar: Þessi tilkynning mun einnig innihalda áfrýjunarmöguleika. Við biðjum þig um að útskýra áfrýjunina í frjálsum textareit.


Hvað gerist eftir að áfrýjun er send inn?

  • Eftir að þú sendir inn áfrýjun munum við fara yfir áfrýjunina og meta hvort breyta eigi upphaflegu ákvörðuninni eða láta hana standa. Við munum tilkynna þér um niðurstöðu áfrýjunarinnar (og við vekjum athygli á því að þú áfrýjar ákvörðuninni aðeins til TikTok einu sinni).
  • Fyrir höfunda munum við, ef áfrýjun þín ber árangur, snúa við þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til gagnvart efni þínu eða reikningi (til dæmis munum við aftur setja inn efni sem hefur verið fjarlægt eða takmarkað eða aflétta banni vegna reiknings eða eiginleika).
  • Ef áfrýjun þín er samþykkt munum við grípa til aðgerða til að fjarlægja eða takmarka tilkynnt efni.

Annar lagalegur réttur

  • Lausn deilumála utan dómstóla: Þú hefur einnig möguleika á að taka þátt í uppgjörsferli fyrir lausn deilumála þriðju aðila utan dómstóla til að leysa úr ágreiningi sem þú kannt að eiga í við TikTok (þ.m.t. í tengslum við áfrýjanir). Ráðfærðu þig við vefsíðu framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins til að sjá heildarlista yfir samþykkta úrskurðaraðila utan dómsstóla.
  • Dómstólar: Þú gætir einnig haft möguleika á að leita úrræða hjá dómstólum, annaðhvort á Írlandi (þar sem TikTok hefur höfuðstöðvar sínar í ESB) eða, ef við á, í því aðildarríki Evrópusambandsins þar sem þú býrð (eða með skráð aðsetur þegar um er að ræða fyrirtæki). Að áfrýja TikTok eða nota uppgjörsferli deilumála utan dómstóla kemur ekki í veg fyrir að þú getir gert þetta.
  • Eftirlitsaðilar: Notendur TikTok-kerfisins kunna einnig að hafa rétt til að leggja fram kvörtun til eftirlitsyfirvalds í því ESB-landi þar sem þeir eru staðsettir (eða með skráð aðsetur þegar um er að ræða fyrirtæki).